Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hafa Aðföng ákveðið að taka úr sölu og innkalla Julius heilar endur. Innköllunin varðar eingöngu þær sölueiningar sem hafa lotunúmer 3482255.
Ástæða innköllunarinnar er að Salmonella greindist í sýni teknu úr framleiðslulotunni.
Tilgreint lotunúmer hefur verið tekið úr sölu í verslunum.
Upplýsingar um vöruna:
Vöruheiti: Julius heilar endur ( Pekingendur )
Nettómagn: 2,4 kg
Umbúðir: Plastfilma
Strikamerki: 5706911023637
Lotunúmer: 3482255
Geymsluskilyrði: Frystivara
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups
Viðskiptavinum Bónus og Hagkaups sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að neyta hennar og er bent á að setja sig í samband við Aðföng. Fyrir hönd framleiðanda vörunnar biður Aðföng viðskiptavini Bónus og Hagkaups sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gm@adfong.is .