Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hafa Aðföng ákveðið að taka úr sölu og innkalla OFC Mild Chunky Salsa. Innköllunin varðar eingöngu sölueiningar með best fyrir dagsetningu 16. febrúar 2025.
Ástæða innköllunarinnar er að glerbrot fannst í einni krukku.
Tilgreind best fyrir dagsetning hefur verið tekin úr sölu í verslunum.
Upplýsingar um vöruna:
Vöruheiti: OFC Mild Chunky Salsa
Nettómagn: 425g
Umbúðir: Glerkrukka
Strikamerki: 048707444215
Best fyrir dagsetning: 16-02-2025 ( EXP 16 FEB 2025 )
Lotunúmer: MCSP 24-047 001
Geymsluskilyrði: Stofuhiti, en kælivara eftir opnun krukku.
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups
Viðskiptavinum Bónus og Hagkaups sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að neyta hennar og er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Fyrir hönd framleiðanda vörunnar biður Aðföng viðskiptavini Bónus og Hagkaups sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gm[at]adfong.is
Hlekkur á mynd sem sýnir hvernig best fyrir dagsetning og lotunúmer koma fram á vörunni.
Tilkynning frá Aðföngum vegna innköllunar á OFC Mild Chunky Salsa á pdf. sniði.