Kjarnahlutverk Aðfanga er að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru. Til að uppfylla það hlutverk kappkostum við að tryggja skilvirkan flutning, gagnsæi í uppruna og bestu mögulegu gæði í vöruvali. Við leggjum metnað í að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar með skilvirkum verkferlum og umhverfisvænum lausnum.
Aðföng leggur megináherslu á að draga úr vöru- og matarsóun í virðiskeðjum sínum þar sem dregið verði úr að vörum og mat sé hent og þær heldur nýttar á einn eða annan hátt. Aðföng ætlar sér að mæla heildarlosun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol. Leitast verður við að lágmarka sorp frá rekstri Aðfanga með hringrásarhugsun, vali á nauðsynlegum umbúðum og flokkun á sorpi. Aðföng ætla að finna grunnkolefnisspor miðað við núverandi rekstur á beinni og óbeinni losun á umfangi 1 og 2 og í kjölfarið setja sér loftslagsstefnu og skýr markmið með tilliti til allra losunarþátta. Í kjölfarið mun önnur óbein losun vera kortlögð á umfangi 3. Þegar Aðföng hafa fengið skýra yfirsýn á losun verður áætlun mótuð til að draga úr losun til 2027. Notast verður við ábyrgar mótvægisaðgerðir með kolefnisbindingu í samstarfi við aðila sem bjóða upp á vottaðar kolefniseiningar en leitast verður við að styðja við framleiðslu á íslenskum kolefniseiningum.
Aðföng sækist eftir góðu og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fjölbreytileika og jafnrétti á vinnustað. Með því skapast breiðari og fjölbreyttari þekking hjá félaginu þar sem allir fá jöfn tækifæri. Innan Aðfanga eru fordómar, áreitni og einelti ekki liðið. Fyrirtækið leggur áherslu á að þróa heilsueflandi starfsumhverfi og er vellíðan á vinnustað mikilvægur partur af stefnu Aðfanga, þar sem er bæði hugað að heilsu og öryggi á vinnustað. Fyrirtækið hefur einsett sér að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif með fræðslu til neytenda og vöruframboði með aukinni áherslu á sjálfbærar, vottaðar og heilsusamlegar vörur.
Aðföng tryggja að stjórnarhættir séu ávallt til fyrirmyndar og í samræmi við lög og reglur. Fyrirtækið tryggir gagnsæi í virðiskeðju og að koma í veg fyrir hvers kyns spillingu með því að innleiða siðareglur fyrir starfsfólk, birgja og þjónustuaðila sem eru undirritaðar með reglubundnum hætti. Gagna- og persónuverndarstefnur verða innleiddar og verkferlar til stuðnings. Sjálfbærni og loftslagsmál verða innleidd sem fast viðfangsefni á fundum hjá stjórnendum. Fyrirtækið gefur árlega út samfélagsskýrslu sem miðlar markmiðum og lykilmælikvörðum Aðfanga.