Auðvelt
Rauðrófubaka
Tilbúið bökudeig
Bökuform með lausum botni
100g soðnar kjúklingabaunir
100g forsoðnar rauðrófur
1 msk ólífuolía
1 msk balsamedik
1 tsk sjávarsaltflögur
Tófúkrem
150g tófú
2 msk næringarger
2 msk ólífuolía
1 msk sítrónusafi
1 msk sinnep
1 daðla smátt skorin
1 tsk sjávarsaltflögur
Kryddmauk
3 hvítlauksrif
1 rauður chili, steinhreinsaður
1 tsk malað fennelduft
1 tsk malað cuminduft
50g ferskur kóríander eða blanda af kóríander og steinselju
1 dl ólífuolía
hýði af 1 sítrónu
1 msk sítrónusafi
salt og pipar
75g ristaðar heslihnetur, gróft saxaðar
Hitið ofninn í 180°C
Setjið tilbúið bökudeig í smurt bökuform, u.þ.b. 26/29 cm í þvermál, notið gaffal til að búa til litlar holur svo deigið blási ekki upp. Stingið gafflinum u.þ.b 10 sinnum i deigið.
Forbakið í 8-10 mín eða þar til deigið byrjar að taka gylltan lit.
Á meðan deigið er að bakast, skerið rauðrófur í þunnar sneiðar og búið til tófúkremið.
Setjið allt innihaldið fyrir tófúkremið í matvinnsluvél eða blandara (tófú, næringarger, ólífuolía, sítrónusafi, sinnep, daðla og salt) og blandið þar til silkimjúkt.
Smyrjið fyllingunni í forbakaðan botninn, stráið kjúklingabaununum þar ofan á og pressið létt niður í tófufyllinguna og endið á því að raða rauðrófusneiðunum þar ofan á.
Skvettið ólífuolíu og balsamediki yfir rauðrófurnar ásamt því að strá smá sjávarsalti yfir.
Bakið í um 20 – 25 mín.
Á meðan bakan er að bakast, búið til kryddmaukið með því að setja allt innihaldið nema heslihneturnar í blandara og blanda saman. Setjið í skál og bætið heslihnetunum út í.
Setjið maukið yfir nýbakað bökuna og berið fram.