Auðvelt
Rabarbaralag
300 - 400 g rabarbari (u.þ.b)
¾ dl hrásykur
1 vanillustöng, skorin í tvennt eða
1 tsk vanilludropa
Mulningur
75g spelt
100g haframjöl/tröllahafrar
60g heslihnetur, malaðar eða saxaðar
70g hrásykur
1 tsk kanill
¾ tsk sjávarsalt
¾ dl kókosolía
1 msk ólífuolía
Skerið rabarbarann í þunnar sneiðar og setjið í botninn á eldföstu móti ásamt kókospálmasykri og vanillu. Látið standa á meðan deigið er útbúið. (Heyrst hefur að sælkerar hafi prófað að bæta söxuðu súkkulaði við rabarbarablönduna.. ekki getur það skemmt fyrir).
Blandið öllu saman í skál og hnoðið þar til klístarast. Ef deigið er of þurrt má bæta örlítilli auka ólífuolíu útí. Setjið deigið ofan á rabarbarann. Bakið við 165°C í 30 mín, eða þar til rabarbarinn er orðinn mjúkur og mulningurinn gylltur. Berið fram með góðum ís eða þeyttum hafrarjóma eða ykkar uppáhalds rjóma.