Til baka

Sólberjaskál

2 ½ dl frosin sólber

1 banani

½ - 1 avókadó

1 tsk vanilluduft (eða dropar)

1 dl kókosmjólk (fyrir rjómakenndari skál er hægt að setja kókosmjólkurdósina inn í ísskáp í smá stund svo þykki hlutinn stífni, nota síðan bara þykka hlutann í uppskriftina).


Setjið kókosmjólkina, avókadó, banana og vanillu í blandara og blandið þar til silkimjúkt.

Hafið blandarann í gangi, takið tappann úr lokinu og setjið sólberin ofan í nokkur í einu. Þannig nær skálin að verða alveg silkimjúk. Ef blandarinn ykkar er ekki mjög kröftugur er hægt að setja þetta fyrst í matvinnsluvél og síðan í blandarann. Eða hafa þetta þynnra og setja síðan inn í frysti smá stund svo skálin þykkni.

Setjið maukið í skál og skreytið með ferskum ávöxtum, heslihnetum og hampfræjum.

Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum