Til baka
Dal - linsubaunapottrettur
Linsur eru góður próteingjafi úr jurtaríkinu, saðsamar og næringarríkar. Gott er að bera dal fram með lífrænum hrísgrjónum, ofnbökuðu rótargrænmeti og raitu. Sumum finnst naan brauð líka gott með.
Sætar kartöflur
1 stór sæt kartafla
1 msk kókosolía
½ dl vatn
smá salt
Raita
1 bolli hrein jurtajógúrt
⅓ agúrka, skorin í bita eða rifin með rifjárni
1 hvítlauksrif, pressað
Dal
1 meðalstór laukur
2 hvítlauksrif
2 msk engiferskot
1 ½ msk karrí blanda (garam masala)
1 tsk túrmerik
1 msk ólífuolía
1 lítið blómkálshöfuð eða ½ stórt, skorið í munnbita
250g rauðar linsur (½ poki)
1 dós kókosmjólk
400-500 ml vatn (hægt að nota bara vatn ef vill - þá ca 800 ml, en kókosmjólkin gefur dásamlega áferð)
1 ½ tsk sjávarsalt
3-4 tsk sítrónusafi
cayenne pipar eftir smekk
Vænn slurkur af hvítlauks ólífuolíu (Látið niðursneiddan hvítlauk standa í ólífuolíu á meðan maturinn er eldaður).
Skerið niður lauk, hvítlauk og blómkál í bita. Hitið olíu í potti og mýkið laukinn og hvítlaukinn ásamt kryddum í 2-3 mínútur. Þetta er gert til að opna bragðið af kryddunum. Bætið svo blómkálsbitunum út í, því næst linsunum, vökvanum og saltinu. Látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann þannig að allt malli í rólegheitum í u.þ.b. 20 mín - eða þar til blómkálið er orðið mjúkt og linsurnar orðnar að hálfgerðri kássu. Hrærið í af og til og fylgist með að brenni ekki í botninn. Hafið pottinn opinn, en ekki of háan hita. Í lokin, þegar dalið er tilbúið, bætið þá sítrónusafanum, cayenne pipar og smávegis af hvítlauksolíunni út í. Smakkið dalið, ef ykkur finnst það mega vera bragðmeira bætið við smá auka salti, sítrónusafa eða hvítlauks ólífuolíu.
Afhýðið sætu kartöfluna og skerið í passlega bita. Forhitið ofninn í 180°C. Bakið í 20-30 mín. og hrærið nokkrum sinnum. Það er örlítið misjafnt eftir ofnum og stærð bitanna hversu lengi þær eru að bakast, þær gætu þurft aðeins lengri tíma.
Fleiri uppskriftir
Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribey, hér ertu með uppskrift af ribey nautalund sem kitlar bragðlaukana.
Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.
Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.