
Innan Aðfanga starfar fólk með ólíkan bakgrunn, þekkingu og reynslu en við tökum ávallt vel á móti góðu fólki.

Ábyrgð
Hver og einn ber ábyrgð á sínu viðhorfi og sínum árangri
Liðsheild
Samvinna stuðlar að betri árangri og öflugri liðsheild
Heiðarleiki
Við sýnum sjálfum okkur og öðrum virðingu með því að segja sannleikann og draga ekkert undan
Metnaður
Við leitum stöðugt að nýjum leiðum til að bæta störf okkar, fyrirtækið og umhverfið til að þjóna viðskiptavinum okkar betur
Stefna okkar miðar að því að taka vel á móti fólki og veita því viðeigandi starfsþjálfun. Einnig viljum við stuðla að jákvæðu starfsumhverfi sem skapar góða liðsheild.

Ráðningar og móttaka nýliða
Ráðningar á nýju starfsfólki eru byggðar á hæfni og reynslu umsækjenda. Tekið er tillit til jafnréttissjónarmiða við allar ráðningar og nýliðar fá viðeigandi þjálfun til að geta tekist á við nýtt starf.
Öryggi og heilbrigði
Öryggi og heilbrigði skiptir okkur miklu máli og stjórnendum ber að tryggja að allur aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustað sé í samræmi við nýjustu lög og reglugerðir. Starfsfólki er að sama skapi gert að fara eftir kröfum sem til þeirra eru gerðar hvað varðar öryggi og aðgát í starfi.
Starfsumhverfi
Lögð er áhersla á innri starfsþróun og að allt starfsfólk hafi jöfn tækifæri til að þróast í starfi. Hvers konar mismunun vegna kyns, kynhneigðar eða uppruna er óheimil. Einelti og kynferðisleg áreitni er ekki liðin hjá Aðföngum.
Fjölskylduábyrgð
Leitast er við að hafa gott vinnuskipulag sem skapar jafnvægi á milli starfs og einkalífs
Starfsandi og virðing
Við deilum öll ábyrgð á því að skapa hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af jákvæðum samskiptum og virðingu fyrir samstarfsfólki.
Starfsfólk
Ferskar kjötvörur
Himneskt