Jafnlaunastefna Aðfanga

Jafnlaunastefna Aðfanga

Jafnlaunastefna er órjúfanlegur hluti af launastefnu Aðfanga og er ætlað að tryggja öllu starfsfólki fyrirtækisins jöfn tækifæri eins og kveðið er á um í lögum og stjórnarskrá um jafna stöðu og jafnan rétt kynja.

Markmið stefnunnar er að stuðla að því að allt starfsfólk hafi jöfn tækifæri og koma í veg fyrir hvers konar mismunun.

Eftirfarandi jafnlaunamarkmið skulu höfð að leiðarljósi: 

Aðföng er vinnustaður þar sem allir, óháð kyni, eiga jafna möguleika til starfa.

Að allir óháð kyni, njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. 

Aðföng er vinnustaður þar sem starfsfólk getur samræmt vinnu og einkalíf.

Aðföng gæta þess að allt starfsfólk hafi sömu tækifæri til starfsþróunar, náms og fræðslu.

Aðföng líða ekki kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni, einelti eða annað ofbeldi. 

Jafnlaunakerfi Aðfanga

Jafnlaunakerfi Aðfanga

Stefnan tekur mið af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og er lögð sérstök áhersla á fjögur markmið:

Jafnlaunakerfi

Jafnlaunakerfi

Aðföng hafa innleitt jafnlaunakerfi sem nær til alls starfsfólks til að framfylgja settum stefnumiðum. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfinu og að þeim lagalegu kröfum, og öðrum kröfum sem tengjast jafnlaunakerfinu, sé framfylgt. Fjármálastjóri og mannauðsstjóri eru ábyrgir fyrir innleiðingu og viðhaldi kerfisins í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85.

Skuldbinding Aðfanga

Skuldbinding Aðfanga

Til að uppfylla skilyrði laganna og stefnunnar skuldbinda Aðföng sig til að skjalfesta, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur staðalsins og ákvarða hvernig kröfum hans verði uppfylltar.

Verklag

Verklag

Ákveðið verklag er viðhaft við launaákvarðanir innan fyrirtækisins sem hefur það að markmiði að tryggja heildaryfirsýn yfir laun, stöðugar umbætur á launakerfinu, eftirlit með kynbundnum launamun og viðbrögð sem felast í því að leiðrétta kynbundinn launamun tafarlaust komi hann í ljós. 

Jafnlaunamarkmið

Jafnlaunamarkmið

Stjórn setur fram jafnlaunamarkmið og rýnir jafnlaunakerfið árlega. Jafnlaunamarkmið skulu endurskoðuð út frá niðurstöðum launagreiningar. Stjórnendur skulu einnig skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu. 

Jafnlaunastaðall

Jafnlaunastaðall

Aðföng hafa frá árinu 2019 fylgt jafnlaunakerfi sem nær til alls starfsfólks til að framfylgja settum stefnumiðum og höfum við hlotið jafnlaunavottun og uppfyllt skilyrði jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012, frá þeim tíma. Óútskýrður launamunur Aðfanga hefur ávallt verið undir viðmiðum og var árið 2023, 0,4% körlum í vil.

Aðföng hljóta jafnlaunavottun

Aðföng hljóta jafnlaunavottun

Í lok febrúar 2019 hlutu Aðföng jafnlaunavottun og heimild Jafnréttisstofu til að nota jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins. Það var BSI á Íslandi, sem sá um úttekt á jafnlaunakerfi Aðfanga og vottaði að jafnlaunakerfið uppfyllti öll skilyrði jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Jafnlaunakerfið nær til allra starfsmanna Aðfanga og byggir á skilgreindu verklagi til að tryggja að ákvarðanir um laun séu byggðar á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.

Jafnlaunavottun
Jafnlaunavottun

2022 - 2025

2022 - 2025

Viltu vita meira um Aðföng?

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.