Auðvelt
Ekki þurfa allar smákökur að vera sætar. Hér höfum við dýrindis smákökur með parmesan og púrrulauk, heslihnetum og sinnepi sem eru algjörlega ómótstæðilegar.
115g parmesan eða vegan parmesan, rifinn
1 dl púrrulaukur eða vorlaukur
100g lífrænt spelt
50g heslihnetur
1 msk lífrænt gróft sinnep
75g smjör eða vegan smjör
½ tsk sjávarsaltflögur
Saxið heslihneturnar gróft og þurrristið á pönnu.
Skerið púrrulaukinn eða vorlaukinn smátt.
Rífið ostinn og setjið í hrærivélaskál og bætið restinni af uppskriftinni út í og látið hnoðast saman. (Gott að nota annað hvort hrærivél eða matvinnsluvél með hnoðara).
Rúllið lengju úr deiginu og hafið ca 2 cm í þvermál, setjið inn í kæli í 1 klst, má líka vera yfir nótt.
Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír á ofnskúffu. Skerið deigið í um ½ cm sneiðar, raðið á ofnskúffuna og bakið í 10 mín. Hafið augun á smákökunum síðustu 2 mín og passið að þær brenni ekki.
Látið kólna á grind.