Auðvelt
100g möndlur
350 ml vatn
2 msk agavesíróp eða akasíu hunang
1-2 tsk vanilludropar
1/8 tsk sjávarsaltflögur
2 frosnir bananar, skornir í sneiðar
400g frosin jarðaber
skraut:
brætt súkkulaði
ristaðar hnetur
fersk jarðaber eða granateplakjarnar
Byrjið á að blanda saman möndlum, vatni, agavesírópi, vanilludropum og sjávarsaltflögum í kraftmiklum blandara, þar til þetta er orðið að möndlumjólk.
Á meðan blandarinn er í gangi setjið bananasneiðarnar út í, 1-2 í einu í gegnum gatið á lokinu.
Skerið frosnu jarðaberin í tvennt og setjið síðan í gegnum lokið á meðan blandarinn er í gangi, hafið á frekar hægum hraða.
Ef þið eigið ekki kraftmikinn blandara er best að nota matvinnsluvél. Þá er allt sett í matvinnsluvélina og blandað þar til orðið að þykkum jarðaberjaís.
Setjið í glös og skreytið með bræddu súkkulaði, ristuðum hnetum og ferskum berjum eða granateplakjörnum.