Auðvelt
Þessi buff eru frábær með sumarlegu dill og kapers sósunni okkar. Tilvalið að bera fram með fersku salati.
Grænmetisbuff
200g tófú, rifið
150g kartöflur, rifinar
100g hvítkál, rifið
50g rauð paprika, smátt skorin
1 vorlaukur, smátt saxaður
2 hvítlauksrif, pressuð
½ tsk sjávarsalt
¼ tsk chipotleduft
1 tsk sítrónuhýði
Kasjú og kaperssósa
100g kasjúhnetur, lagðar í bleyti
200 ml vatn
30g sinnep
2 döðlur, smátt skornar
20g kapers, saxað smátt
1 tsk dill þurrkað eða 1 msk ferskt
Grænmetisbuff
Byrjið á að rífa grænmetið og setjið í spírupoka eða sigti og kreistið safann úr því.
Setjið síðan grænmetið í skál ásamt restinni af uppskriftinni og blandið saman.
Mótið buff úr deiginu.
Steikið buffin á heitri pönnu.
Fyrir sósuna
Hellið vatninu af kasjúhnetunum sem lágu í bleyti og skolið hneturnar.
Setjið hneturnar í blandara ásamt nýju vatni, sinnepi og döðlum.
Blandið þar til silkimjúkt.
Setjið kapersið og dillið út í og klárið að blanda.