Til baka
Perugrautur
Þessi lúxus chiagrautur er bragðgóður og saðsamur og gefur góða orku inn í daginn. Okkur finnst frábært að útbúa grautinn kvöldið áður og eiga tilbúinn graut í krukku í morgunsárið. Grauturinn er líka mjög gott millimál/nesti.
½ dl chiafræ
½ dl haframjöl eða tröllahafrar
3 dl mjólk að eigin vali (t.d. hafra, möndlu eða kókos)
¼ tsk vanilla (dropar eða duft)
1 msk kakóduft
1 ½ msk hnetusmjör, gróft
2 smátt saxaðar döðlur
1-2 pera skorin í bita
Setjið allt hráefnið nema perubitana í skál eða krukku og hrærið vel saman, látið annað hvort standa í kæli yfir nótt, eða bara í u.þ.b. 10 mínútur og hrærið aðeins með gaffli af og til. Eða, ef þið eigið hrærivél er mjög þægilegt að setja allt (nema peruna) í hrærivél og láta ganga í allt að 20 mín, þetta gefur góða áferð. Bætið svo ferskum perubitunum útá og njótið! Grauturinn geymist í lokuðu íláti í kæli í 2-3 daga, en gott er að bæta perunum ferskum út á í hvert sinn. Ef perurnar eru geymdar í grautnum fá þær svipaða áferð og niðursoðnar perur, sem sumum finnst gott, en það styttir aðeins geymsluþolið.
Fleiri uppskriftir
Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribey, hér ertu með uppskrift af ribey nautalund sem kitlar bragðlaukana.
Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.
Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.