Til baka
Chiagrautur með hindberjum
Suma morgna er heimsins besta tilfinning að uppgötva að það er til tilbúinn morgunmatur í ísskápnum! Gott ráð er að útbúa stóran skammt af hreinum chiagraut sem geymist í u.þ.b. 5 daga í kæli í lokuðu íláti. Svo er fljótlegt að ná sér í hæfilegan skammt í skál og setja eitthvað góðgæti út á. Í þessari útgáfu eru það hindber, kakónibbur og granateplakjarnar, ásamt dásamlegri hindberjamjólk.
Chiagrautur - stór skammtur
1 dl chiafræ
1 dl tröllahafraflögur
2 dl haframjólk
2 dl kókosmjólk
1 tsk vanilluduft
¼ tsk sjávarsalt
Góðgæti út á grautinn
Nokkur hindber
1 msk granateplakjarnar
1 tsk kakónibbur
Setjið allt í hrærivél og látið vélina hræra í a.m.k. 20 mínútur. Með þessari aðferð fær grauturinn ofsalega skemmtilega og góða áferð, verður aðeins léttari í sér. Einnig er hægt að útbúa grautinn án hrærivélar, áferðin verður bara aðeins öðruvísi. Leggið þá chiafræin og tröllahafrana í bleyti í haframjólk yfir nótt og hrærið síðan upp með kókosmjólkinni næsta dag.
Grauturinn geymist í u.þ.b. 5 daga í kæli, í loftþéttu íláti. (Ef notuð er heimagerð jurtamjólk geymist grauturinn í 3 daga í kæli).
Hrærið hindberjum, granateplakjörnum og kakónibbum saman við 1 dl af tilbúnum graut. Geymist í 2-3 daga í kæli þegar búið er að bæta góðgæti út í.
Ef þið eruð í stuði er algjör lúxus að hella smá hindberjamjólk út á þennan graut.
Hindberjamjólk: 1 dl jurtamjólk + 1 msk hindber + sæta að eigin vali ef vill.
Fleiri uppskriftir
Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribey, hér ertu með uppskrift af ribey nautalund sem kitlar bragðlaukana.
Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.
Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.